Þar sem það eru rétt rúm átta ár liðin frá eina stigi Íslands í sögu HM, sem kom gegn engum öðrum en Messi og félögum í Argentínu, er tilvalið að rifja upp leið Íslands á HM. Flestir muna vel eftir HM í Rússlandi þar sem við Íslendingar vorum meðal þjóða sem tóku þátt en hvernig var leið okkar á mótið?Lars Lagerback sagði skilið við liðið eftir stórkostlegan árangur á sínum tíma með liðið og þá var komið að Heimi einum að láta ljós sitt skína. Hann átti heldur betur eftir skrifa söguna og gefa íslensku þjóðinni svo mikið. Við skulum rifja upp hvernig stærsta afrek í sögu íslenskra íþrótta var framkvæmt.