Þjóðgarðsverði líst vel á fyrsta frágang á Þingvöllum en hann skellti sér á svæðið í morgun eftir stórtónleika Kaleo í þjóðgarðinum í gær. Hann segir gesti heilt yfir hafa verið til fyrirmyndar þó aðeins hafi borið á meira rusli undir lok hátíðarinnar í gærkvöldi, ræst hafi úr umferðarmálum eftir teppu sem hafi minnt marga á sögufræga umferðarteppu 1994. Hann biðlar til ferðaþjónustuaðila að keyra með gát um svæðið næstu daga á meðan frágangi stendur.