Lögreglan á Akureyri rannsakar nú alvarlega líkamsárás á skemmtistað í nótt en alls eru þrjár líkamsárásir til rannsóknar þar á bæ eftir stóru Bíladagahelgina. Einn var handtekinn í nótt vegna rúðubrota en þá var einnig margt um unglingadrykkju um helgina. Lögreglan segir þó að skipuleggjendur Bíladaga hafi verið til fyrirmyndar.