Jökull og Fóstbræður sungu vögguvísu baksviðs

Söngurinn ómaði um alla Þingvelli í gær, líka baksviðs. Liðsmenn Kaleo kíktu í matartjald starfsmanna og flytjenda sem fór þannig að þeir tóku lagið með Karlakórnum Fóstbræðrum sem voru að snæða kvöldmat.Árni Harðarson, kórstjóri Fóstbræðra, stjórnaði og Jökull Júlíusson söngvari Kaleo spilaði á gítar og söng Sofðu unga ástin mín, íslenskt þjóðlag, undir fallegri röddun Fóstbræða.Ragnar Visage ljósmyndari RÚV náði þessu myndskeiði baksviðs. Sjón er sögu ríkari.
Jökull og Fóstbræður sungu vögguvísu baksviðs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd