Góða veðrið lék við tónleikagesti, tónlistarfólk og viðbragðsaðila á tónlistarhátíðinni Bergmáli á Þingvöllum í gær. Lögreglan á Suðurlandi segist mjög ánægð með hvernig til tókst.Dagskráin hófst klukkan tvö og stóð til miðnættis. Fjölmargar hljómsveitir og tónlistarfólk komu fram á hátíðinni, svo sem Kaleo, Mugison, Emilíana Torrini, GDRN og fleiri.Gestir mættu snemma á hátíðina. Líklega hefur góða veðrið spilað þar inn í og þegar leið á daginn fór umferð að þyngjast til Þingvalla.Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að viðburðurinn hafi verið vel heppnaður. Heilt yfir hafi bæði skemmtunin og umferðin eftir á gengið vel, þó svo að vissulega hafi verið raðir eins og við var að búast. Tónleikagestir hafi almennt hagað sér vel.Hljómsveitin Kaleo spilaði til