Sólheimar ses. og Bergrisinn bs. hafa undirritað viljayfirlýsingu um rekstrarframlög fyrir árið 2026 og undirbúning endurnýjaðs samnings milli aðila. Markmið yfirlýsingarinnar er að tryggja áframhaldandi stöðugleika í rekstri og þjónustu Sólheima og styðja við farsæla þróun starfseminnar til framtíðar.Samkvæmt viljayfirlýsingunni verður rekstrargrundvöllur Sólheima fyrir árið 2026 tryggður á grundvelli uppfærðrar rekstraráætlunar. Jafnframt mun fara fram heildstæð greining á rekstri og þjónustu sem nýtt verður sem grunnur að endurnýjuðum samningi aðila.