Sól og hiti víða um land

Það verður sól og sumarveður í dag og hiti víða á bilinu 10 til 17 stig og hlýjast á Suðausturlandi.Áhrifasvæði lægðarinnar sem haldið hefur úrkomubakka upp að Norður- og Austurlandi að undanförnu er komið norður og austur af landinu. Hægur vindur í dag, yfirleitt þurrt og ætti að sjást vel til sólar í öllum landshlutum. Síðdegis og í kvöld má þó búast við stöku skúrum.Á morgun, mánudag, er útlit fyrir fremur hæga suðlæga átt með skúrum og hita á bilinu 10 til 15 stig. Á þriðjudag má búast við að skil lægðar nái inn á suðaustanvert landið með rigningu á köflum en í öðrum landshlutum verður áþekkt veður áfram.
Sól og hiti víða um land

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd