Aron Jóhannsson er fyrsti Íslendingurinn sem spilaði á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Hann valdi að leika fyrir Bandaríkin og ákvörðun hans olli afar miklu fjaðrafoki. Margur landinn hneykslaði sig á Aroni en aðrir skildu hann ansi vel, enda hafði Ísland aldrei komist á stórmót í fótbolta þegar hann valdi Bandaríkin.Hér segir Aron sögu sína í löngu viðtali við Gunnlaug Jónsson í Góð íþrótt, Gulli betri.Hvernig gerðist þetta? Af hverju gerðist þetta? Hver voru viðbrögðin? KSÍ ÆFIR - ARON KEMUR AF FJÖLLUM Ákvörðun Arons olli miklu fjaðrafoki. Knattspyrnusambandið sjálft var eiginlega furðu lostið. Formaðurinn Geir Þorsteinsson var afar harðorður og sagði ákvörðunina óeðlilega að öllu leyti. Aron vissi ekki af umræðunni þá og var að heyra fyrst núna af þessum ummælum.„Ég vissi þetta ek