Kerch-sund tengir Svartahaf og Azov-haf.EPA / StringerÞrír voru drepnir og 22 eru særðir eftir árásir Rússa í Dnipropetrovsk og Poltava-héruðum í austur Úkraínu í gærkvöld.Stigmögnun hefur orðið í átökum milli Rússa og Úkraínumanna undanfarið. Úkraínumenn hafa gert nokkrar árásir á olíuhreinsunarstöðvar og olíuinnviði, síðast í nótt á eldsneytisbirgðastöð og hafnarmannvirki við Kerch-sund á Krímskaga samkvæmtKyiv Independent.Kerch-sund tengir Svartahaf og Azov-haf og er mikilvægt Rússum fyrir flutninga á varningi áfram til Moskvu. Þá gerði úkraínski herinn miklar drónaárásir á olíuframleiðslustöð í útjaðri Moskvu. Svartan reykjarmökk lagði yfir stóran hluta Moskvu eftir árásirnar.