Bretakonungur ætlar að birta skattaskýrslu sína í fyrsta sinn

Karl Bretakonungur ætlar að birta skattaskýrslu sína á fimmtudaginn. Karl verður fyrsti konungborni þjóðhöfðinginn í Bretlandi til að birta skattaskýrslu sína. Breska konungshöllin tilkynnti um þessa ákvörðun hans í gær.Heimildir breska ríkisútvarpsins herma að það hafi verið persónuleg ákvörðun hans að gera skattaskýrslu sína opinbera. Þetta er sagt liður í því að auka gagnsæi.Fjármál konungshallarinnar og konungsfjölskyldunnar hafa verið gagnrýnd, sérstaklega eftir að fjármál Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrum Bretaprins, komust í kastljós fjölmiðla. Hann áframleigði húsnæði þrátt fyrir að greiða sjálfur smáaura fyrir höfðingasetur í rúma tvo áratugi.Samkvæmt breskum lögum þurfa konungbornir þjóðhöfðingjar ekki að greiða tekjuskatt, fjármagnstekjuskatt eða erfðaskatt. Þrátt fyrir það hef
Bretakonungur ætlar að birta skattaskýrslu sína í fyrsta sinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd