Það er allt að gerast hjá First Water í Ölfusi skammt frá Þorlákshöfn því þar er verið að koma upp risakerjum undir landeldið og nú þegar er slátrun hafin á fimm kílóa laxi og útflutningur á laxinum gengur vel.Ómar Grétarsson er sölu- og markaðsstjóri First Whater„Nú erum við komin með framleiðslugetu upp á fimm þúsund tonn af laxi svo það standa allar hendur fram úr ermum. Við erum bara mjög stolt af því sem við erum komin með í hendurnar. Við erum farin að ala upp núna vikulega og slátra fimm kílóa laxi og farin að selja út um allan heim. Þetta er bara mjög spennandi allt saman,” segir Ómar.Og það er mikil uppbygging hjá fyrirtækinu framundan?„Já, svo sannarlega. Við erum hálfnuð með það sem við köllum fyrsta fasann. Við klárum hann vonandi í lok næsta árs en það er samt sem áður bara ei