Ísraelar drepa eitt barn daglega á Gaza, að meðaltali

Að jafnaði hefur Ísraelsher drepið eitt barn í árásum á Gaza á hverjum degi síðan tilkynnt var um vopnahlé. Talsmaður Unicef segir þær þjáningar sem lagðar séu á fólk þar vera þær mestu sem sést hafi í heiminum í seinni tíð.Tilkynnt var um vopnahlé á Gaza í október. Í tvö ár á undan höfðu Ísraelar drepið yfir 70.000 manns á Gaza og verið sakaðir um þjóðarmorð. Þrátt fyrir vopnahlé hefur Ísraelsher ekki hætt árásum.Herinn hefur drepið yfir 1.000 manns síðan vopnahlé átti að taka gildi, þar af 265 börn. „Það er fáránlegt, þetta er átakanleg tala,“ segir James Elder, talsmaður Unicef. „Yfir tímabil þar sem átti að taka mið af hófsemi og verndun er barn drepið, að jafnaði eitt á dag í meira en átta mánuði.“Ísraelsher drap tvö börn í árás á íbúðarhús í Gaza-borg í nótt, fjögurra og fjórtán ára
Ísraelar drepa eitt barn daglega á Gaza, að meðaltali

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd