Lögreglan hefur yfir engu að kvarta á tónlistarhátíðinni Bergmál á Þingvöllum enn sem komið er. Þetta segir Jón Gunnar Þórhallsson yfirlögregluþjónn á Suðurlandi í viðtali við fréttastofu.„Umferðin hefur gengið vel. Fólk hefur greinilega hlustað á skilaboðin og lagt snemma af stað og við fögnum því,“ segir Jón Gunnar. „Hún hefur náttúrlega gengið mjög hægt en það hefur aldrei orðið stopp. Það hefur gengið vel að fara inn á stæðin og fólk hefur greinilega fjölmennt í bíla og talsvert í rútur líka.“Yfirlögregluþjónn segir allt hafa gengið vel á og við tónlistarhátíðina Bergmál á Þingvöllum í dag.Ferðamenn eru í dag bróðurhluti þeirra sem fara um Þingvelli. Jón Gunnar segir þá ekki hafa verið til neinna vandræða. Þó hafi reynt á þar til lokað var fyrir umferð.„Við vorum náttúrulega með ferðam