Öflug hitabylgja gengur yfir stóran hluta Evrópu og eru hitamet fyrir júnímánuð víða slegin. Yfirvöld í meðal annars Ungverjalandi, Póllandi, Ítalíu, Frakklandi, Spáni, Grikklandi, Þýskalandi og Sviss hafa varað fólk við hættulegum hita, sem ekki er búist við að lát verði á næstu daga.Hitabylgja reið einnig yfir í Evrópu í maí og hitamet voru ítrekað slegin í meðal annars Bretlandi og Frakklandi.Í fyrradag mældist hitinn í þýsku borginni Saarbrücken 35,6 gráður, sem er mesti hiti sem mælst hefur í Þýskalandi það sem af er ári. Þýska veðurstofan spáir allt að 38 gráðu hita á næstu dögum og hitaviðvaranir eru í gildi á flestöllum svæðum í landinu.Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, boðaði til neyðarfundar í frönsku ríkisstjórninni í morgun vegna hitans. Rauðar og appelsínugular h