Alvarlegt umferðarslys austan við Vík

Tveggja bíla árekstur varð austan við Vík í Mýrdal um klukkan 16. Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, segir bílana hafa ekið úr gagnstæðum áttum og að slysið sé alvarlegt. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út auk sjúkraflutningamanna frá Vík í Mýrdal.Lögreglumenn og viðbragðsaðilar eru að störfum á vettvangi. Á vef Vegagerðarinnar segir að hringvegurinn sé lokaður rétt austan við Vík vegna slyssins.„Lögregla stjórnar umferð á vettvangi og er umferð hleypt í gegn í hollum,“ segir þar.RÚV / Ragnar Visage
Alvarlegt umferðarslys austan við Vík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd