Íransher hefur lokað Hormússundi á ný að sögn stjórnar hersins. J.D. Vance varaforsteti Bandaríkjanna sagði í viðtali við Fox News í dag að hann sæi engin merki um að sundið væri lokað. Stjórn Íranshers sagði að ákvörðun um að loka sundinu aftur hafi verið tekin vegna áframhaldandi árása Ísraela á suðurhluta Líbanon. Stjórn Íranshers segir það brot á friðarsamkomulagi við Bandaríkin.„Við tilkynnum hér með að Hormússundi verður lokað fyrir skipaumferð. Við tökum fram að þetta er fyrsta skrefið í að bregðast við því að óvinurinn hefur ekki staðið við samkomulagið. Ef árásir halda áfram verða frekari aðgerðir skipulagðar til að þrýsta á óvininn til að verða við ákvæðum samkomulagsins,“ sagði stjórn hersins í ávarpi í ríkissjónvarpi í Íran.Það var á föstudaginn í síðustu viku sem samkomulag um