Hætta að fjármagna verkefni sem beinast gegn útbreiðslu HIV og alnæmis

Bandaríkjastjórn ætlar að hætta að fjármagna verkefni í Suður-Afríku sem beita sér gegn útbreiðslu HIV og alnæmis. Samskipti milli Bandaríkjanna og Suður-Afríku hafa verið stirð eftir að Donald Trump var endurkjörinn.Samkvæmt breska ríkisútvarpinu eru yfir átta milljónir íbúa í Suður-Afríku með HIV, sem er það land í heiminum sem er með mestan fjölda smitaðra. Talið er að framlög Bandaríkjastjórnar hafi numið allt að 400 milljónum dollara á ári, allt fram á síðasta ár. Það eru um 20% allra framlaga til verkefna gegn HIV og alnæmi í Suður-Afríku.Fjárframlögum Bandaríkjanna í verkefnin var frestað í október. Bandaríkjastjórn hefur nú staðfest að dregið verði úr þeim og stjórnvöld í Suður-Afríku eigi að geta fjármagnað verkefnin. HEFUR GAGNRÝNT STJÓRNVÖLD Í SUÐUR-AFRÍKU FYRIR AÐGERÐALEYSI G
Hætta að fjármagna verkefni sem beinast gegn útbreiðslu HIV og alnæmis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd