Níu handteknir og tvær alvarlegar líkamsárásir á Akureyri

Talsverður erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra undanfarna tvo daga en Bíladagar fara fram á Akureyri um helgina. Tveir eru í fangageymslu lögreglu í tengslum við alvarlegar líkamsárásir.Heimir Heiðarsson varðstjóri hjá lögreglunni segir skipulag bíladaga hafa verið til mikils sóma en að auknum fólksfjölda fylgi gjarnan meiri erill hjá lögreglu.Hann segir fjóra hafa gist í fangaklefa aðfaranótt föstudags sökum ölvunarástands. Fimm voru handteknir í nótt, þar af fjórir fyrir líkamsárásir. Alls voru þrjár líkamsárásir í nótt. Tveir eru enn í haldi lögreglu.„Tvær af þessum líkamsárásum myndu flokkast sem alvarlegar. Í öðru þeirra missti brotaþoli meðvitund og í hinu var um nefbrot að ræða.“Hann segir lögreglu einnig finna fyrir auknu álagi í umferðinni í tengslum við viðburðinn.„Við
Níu handteknir og tvær alvarlegar líkamsárásir á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd