Síðustu ár hefur skortur á öryggisvistunarúrræðum reglulega ratað í umræðuna, til dæmis fyrir einstaklinga með mikinn eða fjölþættan vanda eða þá sem eru taldir hættulegir sér eða öðrum og þurfa á stuðningi að halda. Landssamtökin Geðhjálp og Afstaða-réttindafélag eru meðal þeirra sem hafa talað fyrir fjölbreyttari úrræðum fyrir þennan hóp.Alþingi samþykkti í gær tvö frumvörp til laga sem varða öryggisráðstafanir, eða vistun einstaklinga utan fangelsis.„Nýrri stofnun verður komið á fót með öryggisgæslustað fyrir allt að 16 einstaklinga sem þurfa sérhæfða þjónustu og er gert að sæta öryggisgæslu en ekki er talið viðeigandi að vista í fangelsi. Ekkert slíkt sérhæft úrræði er til í dag. Þá er heildstæð lagaumgjörð nú í fyrsta sinn til staðar um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn