Tónlistarhátíðin Bergmál er að hefjast á Þingvöllum. Gert er ráð fyrir að um tuttugu þúsund manns verði saman komnir í þjóðgarðinum í dag til að hlýða á hljómsveitina Kaelo, sem stendur að hátíðinni. Umferð fór rólega af stað í morgun og að sögn lögreglu hefur allt gengið vel fram að þessu.Fjölskyldudagskrá hófst klukkan ellefu, á Valhallarsvæði sem er opið öllum, en dagskrá á stóra sviðinu hefst klukkan tvö. Kaleo stígur á svið í fyrra skiptið á hátíðinni klukkan hálf þrjú.Egill Tómasson svæðisstjóri var í óða önn að stýra undirbúningi þegar fréttamaður náði tali af honum í hádeginu. Um þúsund manns eru við störf á hátíðinni, auk nærri 100 lögreglumanna.„Það er kominn her af fólki að fara í allar stöður, öryggisgæsla og fleira og allir starfsmenn í tæknideildum, matarvagnar, barstaff og a