Vopnahlé Ísraels og Hezbollah stendur ekki undir nafni. Ísraelar hafa gert árásir á suðurhluta Líbanons síðan samið var um vopnahléið í gær.Ísraelsher hefur drepið 16 manns, hið minnsta, í árásum á Líbanon í dag, samkvæmt líbönskum stjórnvöldum. Stuttu eftir að tilkynnt var um vopnahlé í gær héldu Ísraelar árásum áfram.Ísraelar hafa lýst því yfir að þeir dragi her sinn ekki frá suðurhluta Líbanons fyrr en Hezbollah-liðar hafi verið afvopnaðir. Að sama skapi hefur Hezbollah sagt að þeir afvopnist ekki fyrr en Ísraelsher hefur haft sig á brott.Her Líbanons segir í tilkynningu á X að áframhaldandi árásir Ísraela hindri allar tilraunir til að endurheimta stöðugleika í landinu. Yfir ein milljón manna hefur hrakist á flótta vegna árása Ísraela. Það eru um 20 prósent landsmanna.Til stóð að fulltr