Lýstu yfir rauðu óvissustigi þegar flugmaður missti meðvitund

Rauðu óvissustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli vegna flugmanns sem féll í yfirlið vegna veikinda skömmu fyrir lendingu. Lendingin gekk vel og engan sakaði. Andri Ómarsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia, staðfestir þetta.Tilkynning barst rétt fyrir klukkan 8 í morgun um að flugmaður í vél easyJet sem var að koma til Íslands frá Edinborg hefði fallið í yfirlið. Andri segir ekki liggja fyrir hvort það var flugstjórinn eða hinn flugmaðurinn. Þar sem óeðlilegt er að aðeins einn flugmaður sé með rænu við lendingu var lýst yfir rauðu óvissustigi og í kjölfarið fór af stað ferli hjá Neyðarlínu.Flugvélin lenti síðan á Keflavíkurflugvelli klukkan 08:02. Að sögn Andra var flugmaðurinn þá þegar vaknaður. 18 farþegar voru í flugvélinni og 6 í áhöfn.
Lýstu yfir rauðu óvissustigi þegar flugmaður missti meðvitund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd