Dætur Barack og Michelle Obama, fyrrverandi forsetahjóna Bandaríkjanna, sóttu opnunarathöfn Obama-forsetasetursins á dögunum. Malia og Sasha Obama halda sig að mestu utan sviðsljóssins en voru prúðbúnar á viðburðinum.Setrið er safn, bókasafn og menntunarmiðstöð í Chicago til að minnast forsetatíðar Barack Obama. Það hefur lengi verið venja í Bandaríkjunum að setja á fót skjalasöfn eða setur til að heiðra forsetatíð fyrrverandi Bandaríkjaforseta.Sérstaka athygli vekur að eldri dóttir hjónanna, Malia, klæddist íslenskri hönnun á viðburðinum. Hún klæddist hælaskóm frá skó- og fatamerki Katrínar Öldu Rafnsdóttur, Kalda, sem hefur notið mikilla vinsælda hér heima og vestanhafs.Þetta er ekki í fyrsta sinn sem frægir klæðast íslenska merkinu en þar má nefna söng- og leikkonuna Lady Gaga, fyrirsæt