Viðamesta knattspyrnuhátíð heimsins er nú í fullum gangi í Kanada, Mexíkó og Bandaríkjum Norður-Ameríku. Mér finnst nánast óhugsandi að einhver viti ekki af þessum stórviðburði þar sem kynningarmaskína FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, hefur verið á yfirsnúningi undanfarin misseri. RÚV sýnir alla leiki mótsins beint, seinni part dags og fram á rauðamorgun að íslenskum tíma. Allra harðasta áhugafólkið gengur oft ekki til náða...