Einn lést og tugir slösuðust á Englandi í gær í árekstri tveggja farþegalesta. Sá sem lést í slysinu var lestarstjóri í annarri lestinni. Slysið varð síðdegis í gær nálægt Bedford í um hundrað kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni London.89 manns slösuðust, þar af ellefu mjög alvarlega og 22 alvarlega. Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir en svo virðist sem önnur lestin hafi verið kyrr á lestarteinum og að hinni hafi verið ekið aftan á hana.Einn farþeganna er Peter Knapp sem hafði farið til Bedford í gær að skoða hús til sölu. Knapp sat í fremsta vagninum og heyrði mikla sprengingu við áreksturinn. Mikill reykur hafi verið inni í lestarvagninum. Hann rak höfuðið í sætið fyrir framan sig og segir að fjöldi sæta hafi brotnað við áreksturinn. Fólk hafi kastast á hann og á gangveginn. Mar