Lögreglan á Norðurlandi vestra hvetur fólk til að fara varlega vegna skriðu- og grjóthrunshættu.Í tilkynningu segir að aukin hætta sé á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu síðustu daga, meðal annars í Almenningum á milli Siglufjarðar og Haganesvíkur. Þar segir að á Siglufirði hafi mælst 103 millimetra úrkoma síðustu 48 klukkustundir og að búist sé við áframhaldandi rigningu fram á kvöld. Jarðvegur sé víða orðinn mjög mettaður og því geti jarðvegsskriður, aurskriður og grjóthrun orðið í bröttum hlíðum.Lögregla biður fólk að sýna aðgát á ferðinni og að dvelja ekki undir giljum og bröttum hlíðum að óþörfu.Siglufjörður.Ágúst Ólafsson / RÚV