Málefnahópur Öryrkjabandalags Íslands gagnrýnir harðlega að komugjöld séu undanskilin í nýjum lögum um sjúkratryggingar í almenna greiðsluþátttökukerfinu. Í ályktun sem málefnahópur ÖBÍ sendi fjölmiðlum í gær segir að ójöfnuður í aðgengi að heilbrigðisþjónustu eigi eftir að aukast með lagabreytingunni og það sé óásættanleg niðurstaða.Kostnaður fatlaðs fólks og öryrkja vegna þjónustu sjúkraþjálfara eigi einnig eftir að hækka töluvert. Í ályktuninni er tekið dæmi um öryrkja sem þarf þjálfun hjá sjúkraþjálfara einu sinni í viku. Nýju lögin geri ráð fyrir að öryrkinn greiði 1.000 krónur í hvert sinn eða 48.000 á ári og sá kostnaður verði utan greiðsluþátttökukerfis.Þar að auki eigi öryrkjar þess ekki kost að fá hluta þessa kostnaðar endurgreiddan úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga.Málefnahópur ÖBÍ