Jensína er Reykvíkingur ársins

Jensína Edda Hermannsdóttir, leikskólastýra Laufásborgar, er Reykvíkingur ársins 2026. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri tilkynnti valið við opnun Elliðaáa í morgun, en þetta er í sextánda sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.Jensína Edda, eða Jensa eins og hún er gjarnan kölluð, var mætt eldsnemma í morgun í Veiðihúsið við Elliðaár, en formleg opnun árinnar er í dag. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri var mætt, tilkynnti valið á Reykvíkingi ársins og óskaði Jensu til hamingju. Hún sagði ánægjulegt að heiðra svo öflugan eldhuga og frumkvöðul í skólamálum sem sannarlega hefði snert líf margra fjölskyldna í borginni síðastliðna tvo áratugi. Að lokinni hressingu og spjalli héldu Jensa og borgarstjóri ásamt veiðileiðsögumanni á Breiðuna. Þar renndi Jensa fyrir laxi í boði borgarstjórans í Reykj
Jensína er Reykvíkingur ársins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd