Hantaveirusmit kom upp á skemmtiferðaskipinu Hondiusi í byrjun maí. Skipið var sótthreinsað í Rotterdam í Hollandi og sigldi á nýjan leik í lok maí. Hondius kemur til Akureyrar 15. ágúst. Engar sértækar ráðstafanir eru fyrirhugaðar að sögn umboðsaðila skipsins á Íslandi.Hafnaryfirvöld hafa hvorki verið í samskiptum við umboðsaðilann né skipafélagið Ocean Wide sem rekur Hondius. Pétur Ólafsson, hafnarstjóri á Akureyri, segir ekkert því til fyrirstöðu að skipið komi til Akureyrar ef sóttvarnayfirvöld gera ekki athugasemdir við það.Íris Hrund Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Gáru, umboðsaðila skipsins, segir það hafa verið þrifið rækilega og sótthreinsað og frekari ráðstafana sé ekki þörf.„Skipið hefur farið í ítarlega hreinsun og samþykktarferli og er alveg fullkomlega öruggt til reksturs og