Hvalveiðiskip sigldu út til veiða í gærkvöld

Hvalveiðibátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu til veiða um klukkan tíu í gærkvöld. Morgunblaðið greindi fyrst frá.Enginn hvalur var veiddur við Íslandsstrendur undanfarin tvö ár. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þáverandi matvælaráðherra, veitti leyfi eftir að hvalveiðitímabilið átti að hefjast árið 2024 og varð því ekkert af veiðunum.Þá sagði Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf. síðasta vor að hvalveiðar myndu ekki borga sig það sumarið og því var enginn hvalur veiddur heldur í fyrraÍ ráðgjöfHafrannsóknastofnunar í ár er lagt til að ekki verði veiddar fleiri en 150 langreyðar og 168 hrefnur, í sumar. Atvinnuvegaráðherra hefur boðað frumvarp um hvalveiðibann í vetur en Bjarni Benediktsson veitti hvalveiðaleyfi til fimm ára 2024.Hvalur 9 sigldi af stað frá Reykjavíkurhöfn á fimmtudag með
Hvalveiðiskip sigldu út til veiða í gærkvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd