Milt veður og allt að 16 stiga hiti

Lægð norðaustur af landinu stjórnar veðrinu í dag. Spáð er norðlægri átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, með áframhaldandi rigningu á Norður- og Austurlandi og frekar kalt í veðri, hiti verður á bilinu 5 til 10 stig.Staðan er önnur sunnan heiða þar sem verður þurrt og allvíða bjart með hita að 16 stigum, en þó eru líkur á síðdegisskúrum við suðurströndina.Á morgun, sunnudag er svo útlit fyrir hæglætis veður á landinu, stöku skúrir á stangli og það hlýnar heldur fyrir norðan og austan.
Milt veður og allt að 16 stiga hiti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd