Einn fluttur á slysadeild eftir eld í íbúð á Klapparstíg

Eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi á Klapparstíg norðan við Laugaveg í morgun. Slökkviliði barst tilkynning um eldinn klukkan sex.Björn Ingi Guðjónsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir slökkvistarf hafa gengið vel. Talsvert tjón sé á íbúðinni vegna reyks.Hann segir eldinn hafa verið staðbundinn við eldhús en enginn hafi verið í íbúðinni. Lögregla rannsaki upptök eldsins. Ekki sé tjón á öðrum íbúðum í húsinu og íbúar þeirra hafi getað snúið aftur í sínar íbúðir að slökkvistarfi loknu.Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til athugunar vegna gruns um reykeitrun.
Einn fluttur á slysadeild eftir eld í íbúð á Klapparstíg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd