Jarðskjálfti af stærðinni 2,9 varð klukkan 03:44 í nótt. Skjálftinn varð úti á sjó á Reykjaneshryggnum vestan við Eldey. Nokkrir smærri skjálftar riðu yfir á svipuðum tíma. Lítilla skjálfta hefur gætt á um klukkutíma fresti í nótt. Bryndís Ýr Gísladóttir náttúruvársérfræðingur segir ekkert óeðlilegt við skjálfta á þessu svæði. Þar séu reglulega skjálftahrinur, jafnvel áður en eldsumbrot á Reykjanesi hófust.Veðurstofa Íslands