Féll af rafskútu, fékk flog og bullaði: „Heilinn missti allar tengingar við orðin“

Á dögunum kom hin goðsagnakennda hiphop-sveit Subterranean saman eftir áratugahlé og hitaði upp fyrir Mobb Deep. Subterranean var stofnuð 1997 og skipuð Magnúsi Jónssyni sem þá kallaði sig Magse; Karli Davíðssyni sem var þekktur sem kalli Youxe, Rögnu Kjartansdóttur eða Cell7 og Frew Elfineh Taha eða Black Fist. Þau gáfu út sína fyrstu plötu sama ár og nefndist hún Central Magnetizm og var ein af fyrstu hiphop-útgáfum á Íslandi. Þau eru frumkvöðlar í íslensku rappi. Fyrir nokkrum árum mátti litlu muna að ein úr sveitinni, Ragna Kjartansdóttir eða Cell7, ætti ekki afturkvæmt á tónlistarsviðið. En ást Rögnu á rappinu á sér afar djúpar rætur. Anna Marsibil Clausen ræddi við hana í þættinum Ástarsögur á Rás 1 um rappið og slysið sem varð til þess að hún missti nánast flæðið. RAPPIÐ VAR EINS
Féll af rafskútu, fékk flog og bullaði: „Heilinn missti allar tengingar við orðin“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd