Asparglyttufaraldur herjar á landið

Asparglytta fannst í fyrsta sinn á Austurlandi í fyrrasumar. Hennar varð fyrst vart á Íslandi 2004 og síðan hefur hún breiðst hratt út og landsmenn hafa orðið vel varir við þetta glitrandi skordýr. Asparglytta gerir fólki ekki mein en getur verið skaðvaldur í ýmsum trjátegundum.Ekki er mælt með því að eitra en góðu fréttirnar eru að þessi vágestur á sér náttúrulegan óvin sem er nýkominn til landsins. Sá heitir trjónutíta.Helga Ösp Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Landi og skógi og skógarvörður í Vaglaskógi, bindur vonir við að trjónutítan breiðist hratt út til og vinni á asparglyttustofninum.„Ef trjónutítan fer að dreifa meira úr sér og leggjast meira á asparglyttuna förum við að sjá meira svona bakslag.“
Asparglyttufaraldur herjar á landið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd