Vatnsendi: 16 ára strákur erfði framtíðarbyggingarland höfuðborgarsvæðisins

Sextán ára strákur í Kópavogi fékk óvenjulegan arf þegar faðir hans lést árið 2018. Strákurinn erfði hina flennistóru Vatnsendajörð við Elliðavatn í Kópavogi og varð um leið miðdepill í einum flóknustu erfðadeilum okkar tíma.Deilurnar eiga rætur sínar að rekja til umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði fyrir 90 árum. Erfðaskráin hefur fært útvöldum karlmönnum í Hjaltested-ættinni jörðina og ómæld auðæfi en líka hneppt þá í fjötra. Jörðin er framtíðarbyggingarland höfuðborgarsvæðisins og Kópavogsbær hefur áform um að reisa á henni rúmlega þúsund manna byggð. Á undanförnum áratugum hefur verið tekist hart á um hver eigi og megi búa á Vatnsendajörðinni og á annan tug dóma hafa verið kveðnir upp. Ótti við frekari málaferli hefur fælt Kópavogsbæ frá því að hefja uppbyggingu á landi
Vatnsendi: 16 ára strákur erfði framtíðarbyggingarland höfuðborgarsvæðisins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd