Tvær helstu áskoranir samtímans í íslensku samfélagi eru ör fjölgun eldra fólks og vaxandi skortur á íbúðarhúsnæði. Kópavogsbær áformar, í samvinnu við einkaaðila, að takast á við þessar áskoranir með uppbyggingu húsnæðis til búsetu og með því að reisa og reka heilbrigðisþjónustu á Gunnarshólma.