Bandaríkin urðu í gærkvöld annað liðið á yfirstandandi heimsmeistaramóti í fótbolta til að verða „heimsmeistarar“. Liðið vann Ástralíu 2-0 og er nú í afar góðri stöðu í riðli sínum. 32-liða úrslitin bíða og þaðan eru bara 450 mínútur að heimsmeistaratitli ef allt gengur upp.Hins vegar fékk liðið óopinbera heimsmeistaratitiinn í gær. Á ensku heitir keppnin Unofficial Football World Championships og er eins og allt gott í þessum heimi hugarfóstur nörda. LÍKT OG HNEFALEIKAR Keppnin snýst í raun um að halda utan um alþjóðlegan fótbolta á óformlegan hátt. Heimsmeistaratitlinum svipar til þess hvernig haldið er utan um titla í hnefaleikum. Aðeins eitt lið getur verið heimsmeistari og strax og annað lið vinnur núverandi heimsmeistara skiptir titilinn um hendur.Tyrkir komu inn í mótið sem ríkja