Vísindamenn hafa greint fyrsta tilfellið af fuglaflensu, af H5-afbrigði, í Ástralíu í fyrsta sinn. Þessi bráðsmitandi veira hefur nú greinst í öllum heimsálfum.Fuglaflensan greindist í brúnskúmi á vesturströnd Ástralíu og grunur leikur á fleiri smituðum fuglum. H5-afbrigði af fuglaflensu veldur alvarlegum veikindum í fuglum, bæði hænsnfuglum og villtum fuglum, en getur einnig smitast í spendýr. Dánartíðni er há meðal sýktra dýra.Forsætisráðherra Ástralíu, Antony Albanese, sagði að fuglaflensusmitið væri áhyggjuefni og stjórnvöld ætluðu að gera viðeigandi ráðstafanir til að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu veirunnar. FUGLAFLENSA GÆTI ÓGNAÐ MÖRGUM DÝRATEGUNDUM Um helmingur allra villtra fuglategunda og um 83% af spendýrum í Ástralíu eru af dýrategundum sem finnast ekki annars