Sjóherinn gerði 6 tonn af kókaíni upptæk

Forseti El Salvador Nayib Bukele.EPA / Javier AparicioSjóherinn í El Salvador gerði rúmlega sex tonn af kókaíni upptæk sem verið var að smygla í tveimur skipum á Kyrrahafi í fyrradag. Heildarverðmæti fíkniefnanna er talið vera um 167 milljónir dollara, eða um 20 milljarðar íslenskra króna.Sex voru handteknir í aðgerðum sjóhersins.Forseti El Salvador, Nayib Bukele, sagði í færslu á X í gær að yfirvöld ætluðu að halda áfram að berjast gegn fíkniefnasmygli á svæðum þar sem smyglið hefur fram til þessa farið fram óáreitt.Yfirvöld í El Salvador hafa gert yfir 13 tonn af kókaíni upptæk það sem af er þessu ári. Verðmæti þess er metið á 322 milljónir dollara.
Sjóherinn gerði 6 tonn af kókaíni upptæk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd