Landsréttur hefur sýknað karlmann af öllum ákæruliðum, sem eftir stóðu, fyrir meint ofbeldi gegn barnsmóður hans og fyrrum sambýliskonu. Maðurinn hafði áður verið sýknaður að hluta ákæruliða fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra en sakfelldur fyrir aðra og tók Landsréttur aðeins fyrir þá ákæruliði. Meðal þess sem Landsréttur vísar til í rökstuðningi fyrir því að sýkna manninn alfarið er að konan hafi viðurkennt að hafa stundum svarað fyrir sig þegar maðurinn hafi að hennar sögn ráðist á hana.