Átök virðast hafa blossað upp aftur í Líbanon í dag þrátt fyrir vopnahlé Hezbollah-samtakanna og Ísraels. Líbanski ríkisfjölmiðillinn segir Ísraela hafa gert loftárás á suðurhluta landsins eftir að vopnahléið tók gildi. Á fimmta tug hafa látið lífið og nærri hundrað særst í árásum Ísraelshers síðan á miðnætti.Opinbera fréttastofan NNA í Líbanon sagði Ísraelsher hafa gert loftárás á Jezzine, sem er um fjörutíu kílómetra suður af höfuðborginni Beirút. Einn fréttamaður sagðist einnig hafa séð dróna fljúga yfir borgina Týros. Fréttamaður AFP sagðist einnig hafa heyrt stöðugar árásir stórskotaliðs í borginni Nabatieh.Heilbrigðisráðuneyti Líbanon segir að frá miðnætti hafi 47 manns verið drepnir í loftárásum Ísraelshers og 97 særst. Versta árásin hafi verið í Harouf þar sem níu hafi verið drepni