Meloni segir Trump hafa búið til sögu um sig

Ítalir brugðust ókvæða við í dag vegna ummæla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um Giorgiu Meloni forsætisráðherra landsins í ítölskum fjölmiðlum.Trump sagði í símaviðtali við ítalska fjölmiðilinn La7 TV að Meloni hefði sárbeðið um mynd með sér á fundi G7-ríkjanna í vikunni.AFP-fréttaveitan hefur undir höndum skriflegt afrit af viðtalinu sem hún fékk hjá sjónvarpsstöðinni.„Hún sárbað mig um að taka mynd með sér, ég vorkenndi henni. Hún hefur sennilega verið glöð að ég talaði við hana,“ sagði Trump í viðtalinu. Rödd hans heyrðist þó ekki þar sem ítölsk rödd talaði yfir viðtalið.Meloni brást við ummælunum með því að birta myndskeið á samfélagsmiðlum. Þar sagðist hún hreinlega orðlaus yfir þeim og sagði frásögn Trump uppspuna frá rótum.„Ákveðnir hlutir verðskulda að strax sé brugðist við þeim.
Meloni segir Trump hafa búið til sögu um sig

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd