Fjörutíu og fjögur mansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar í fyrra eða nærri eitt á viku að meðaltali.Dómsmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra gerðu í dag fjögurra ára samning við Bjarkarhlíð og ætla að setja sextíu milljónir króna til verkefna sem tengjast mansali.„Ég myndi segja að þetta endurspegli áherslur ríkisstjórnarinnar og stjórnvalda að ná betri árangri varðandi þennan málaflokk,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Hún bendir á að þolendur mansals séu oft þolendur kynbundins ofbeldis. „Mér finnst passandi að þessi samningur hafi verið undirritaður í dag, 19. júní.“„Þetta er málaflokkur sem er því miður ört vaxandi hér á landi og við sjáum í rauninni bara toppinn á ísjakanum,“ segir Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar. „En við vitum að þ