Lögreglan á Austurlandi komst á snoðir um eggjaþjófnað og smygltilraun með greiningu á farþegalista Norrænu. Par var handtekið í síðustu viku á Seyðisfirði á leið úr landi með fimm lifandi hrossagauksunga og rúmlega hundrað egg frá villtum íslenskum fuglum, sumum alfriðuðum.Óskar Þór Guðmundsson, lögreglufulltrúi á Austurlandi, segir lögreglu ekki hafa fengið ábendingu um eggjaþjófnaðinn.„Við erum búin að vera undanfarin ár að þróa okkur áfram í greiningu á farþegum og erum í mjög góðu samstarfi við Tollgæsluna við það og þetta í rauninni bara kemur upp úr farþegagreiningu,“ sagði Óskar Þór í Síðdegisútvarpinu.„Við undirbúum komu ferjunnar í hverri viku og erum búin að skoða hvaða aðilar eru á farþegalistunum. Auðvitað beitum við handahófskenndri aðferðafræði líka þegar við erum að velja h