Fjallkonan notuð í auglýsingaskyni

Leik- og söngkonan Elín Sif Halldórsdóttir kemur fram sem fjallkona Reykjavíkurborgar í myndskeiði á Instagram-reikningi Blue lagoon skin science. Elín Hall er andlit fyrirtækisins.Myndskeið sem hefur nú verið fjarlægt.Í myndskeiðinu er Elín Hall í hlutverki fjallkonu í skautbúningi í Alþingisgarðinum og segir frá fjallkonunni á ensku.„Hún er tákngervingur íslenska andans, sjálfstæðis okkar og náttúrulegrar fegurðar okkar,“ segir Elín í myndskeiðinu.Í öðru myndskeiði sem Elín birti sjálf á TikTok í samstarfi við Blue Lagoon Skin Science sýnir hún frá deginum sínum sem fjallkonan og auglýsir vörur Bláa lónsins. Þá sýnir hún frá því að Bláa lónið hafi farðað hana.Fjallkonan er tákngervingur Íslands. Hvorki embætti forseta Íslands né forseti Alþingis vildu tjá sig um málið.Það vildi Blue lago
Fjallkonan notuð í auglýsingaskyni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd