Nova Klúbburinn eignast Ofar

Nova Klúbburinn, sem rekur fjarskiptafélagið Nova, hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé Ofar. Greint var frá því í febrúar að félögin hefðu undirritað samning um kaupin sem nema 4,4 milljörðum króna. Þá kom fram að fyrirtækin verði þó rekin hvort í sínu lagi.Í fréttatilkynningu segir að gengið hafi verið frá kaupunum í dag. Með þeim verði Ofar hluti af samstæðu Nova Klúbbsins frá og með 1. júní síðastliðnum.„Í ljósi þess mun Nova Klúbburinn endurskoða útgefnar fjárhagslegar horfur fyrir árið í heild og birta á markaði svo fljótt sem unnt er. Endanlegt heildarvirði (e. Enterprise value) kaupanna að teknu tilliti til nettó stöðu veltufjármuna og hreinna vaxtaberandi skulda á uppgjörsdegi nemur 4.349 m.kr. sem greiðist með nýju láni, að fjárhæð 2.700 m.kr., og handbæru fé,“ segir í tilkynni
Nova Klúbburinn eignast Ofar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd