Alþingi samþykkti frumvarp til laga um nýja stofnun fyrir fólk sem þarf að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn. Þessi hópur hefur hingað til fallið milli skips og bryggju í kerfinu, hafa þótt ógn við velferð annarra en ekki verið hægt að vista hann til frambúðar innan fangelsa.