Alþingi hefur lokið störfum þennan þingvetur og er farið í sumarfrí. Þingið tekur aftur til starfa 8. september.Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra las undir lok þingfundar yfirlýsingu frá Höllu Tómasdóttur forseta þar sem hún veitti umboð til að fresta þingi til 8. september.„Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 157. löggjafarþings, er frestað.“Kristrún sagði þingveturinn hafa gengið vel og vel gekk að klára mikilvæg mál. „Það er bræðra- og systralag meðal manna. Mikið er milli okkar sem sameinar frekar en sundrar.“Hún kvaðst myndu sakna allra í salnum næstu vikur og mánuði.