Borgarráð samþykkti í gær tillögu um að hefja formlegar viðræður við eigendur og leigutaka til að bæta nærumhverfið á byggingarsvæði við vöruskemmu við Álfabakka 2A, eða Græna gímaldið svokallaða.Skemman hefur valdið íbúum við Árskóga í Breiðholti talsverðum ama allt frá því ljóst varð hversu stór hún yrði. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar og formaður borgarráðs, segist skynja vilja til samtals um mótvægisaðgerðir úr öllum áttum.„Okkur finnst mikilvægt að íbúar finni það að við viljum leggja okkur öll fram við að bæta úr því sem þegar er orðið.“Spurður hvaða úrbætur komi helst til greina segir Einar það verða að koma í ljós. Fyrsta skrefið sé að fara í formlegar viðræður og sjá hvert þær leiða. Þá hyggist borgin einnig greina umferðarvanda í nærumhverfinu.„Við samþykktum líka að fara